26/04/2024

Tónleikar á Hólmavík og í Reykholti

Viðar Guðmundsson tónlistarmaður í Miðhúsum verður með tvenna tónleika á næstunni í tilefni af 30 ára afmæli sínu. Verða fyrri tónleikarnir í Reykholtskirkju 23. febrúar kl. 20:30 og þeir seinni í Hólmavíkurkirkju 25. febrúar kl. 16:00. Á tónleikunum munu ásamt Viðari koma fram fjórir kórar ásamt fjölda einsöngvara. Miðaverð er kr. 2.000.- og rennur allur ágóði til góðgerðarmála. Ekki verður posi á staðnum.