29/04/2024

Tónaflóðið verður 13. mars!

640-tonaflod6
Nú hefur verið ákveðin ný dagsetning fyrir Tónaflóð, sem eru fjáröflunartónleikar nemendafélags Grunnskólans á Hólmavík og félagsmiðstöðvarinnar Ozon. Tónleikarnir verða haldnir miðvikudaginn 13. mars, hefjast kl. 19:00 og verða nú staðsettir í Bragganum. Þar munu hljómsveitir skipaðar nemendum úr 5.-10. bekk spila valda slagara ásamt hinum og þessum söngvurum sem jafnan setja mikinn svip á viðburðinn. Allir eru hjartanlega velkomnir!