04/05/2024

Tilboð í síðari áfanga farsímaþjónustu undir kostnaðaráætlun

Kollafjörðurinn verður gsm-væddurÍ fréttatilkynningu Samgönguráðuneytis kemur fram að þrjú tilboð bárust í síðari áfanga uppbyggingar á GSM-sambandi á stofnvegum á landsbyggðinni, en tilboðin voru opnuð í dag. Tvö tilboð eru frá innlendum fyrirtækjum og eitt frá svissnesku. Tilboðin voru öll undir kostnaðaráætlun fjarskiptasjóðs sem var 732 milljónir króna. Á Ströndum er gert ráð fyrir að koma GSM-sambandi á svæðið frá Hrútafirði að Steingrímsfirði í þessum áfanga, auk þess sem sambandi verður komið á í botni Steingrímsfjarðar og á Djúpvegi á leið til Ísafjarðar þar sem það er ekki nú. 


Tilboðin voru eftirfarandi: 

Síminn hf. 655 milljónir króna –  12 mánaða verktími.
Og fjarskipti ehf. 487 milljónir króna – 22 mánaða verktími.
Amitelo 468 milljónir króna – 12 mánaða verktími.

Síðari áfangi GSM-farsímaþjónustunnar snýst um að koma upp og reka farsímaþjónustu á völdum svæðum á landinu, einkum á Vestfjörðum og Norðuausturlandi en einnig víða á Snæfellsnesi, Austfjörðum og Suðurstrandarvegi. Útboðið gerði ráð fyrir að ljúka skuli verkinu á 22 mánuðum en bjóðendum voru gefin stig fyrir að ljúka því fyrr. Verða tilboðin metin út frá heildarhagkvæmni en ekki einvörðungu fjárhæð tilboðs eins og fram kemur í útboðsgögnun.

Ríkiskaup önnuðust framkvæmd útboðsins fyrir hönd fjarskiptasjóðs. Farið verður yfir tilboðin næstu daga og vikur og gert er ráð fyrir að gengið verði frá samningum fyrir lok mánaðarins. Fyrirtækin þrjú voru valin í lokað útboð að undangengnu forvali sem auglýst var á Evrópska efnahagssvæðinu í mars á þessu ári. Fyrirtækin fengu útboðsgögn í júlí og skiluðu tilboðum sínum í byrjun mánaðarins.

Síminn átti lægsta tilboð í fyrri áfanga GSM-farsímaþjónustunnar og er það verk nú langt komið. Nær það til GSM-þjónustu á Hringveginum, fimm fjallvegum og nokkrum ferðamannasvæðum. Í þeim áfanga var komið á sambandi á hluta Steingrímsfjarðarheiði.

Það hlýtur að vera Strandamönnum gleðiefni að tilboð séu langt undir kostnaðaráætlun, því enn eru óleyst verkefni við GSM-væðingu svæðisins þótt báðum áföngum verkefnis Fjarskiptasjóðs verði lokið. Mismuninn má þá nota í önnur verkefni og sveitarstjórnir á svæðinu eru því hvattar til að taka höndum saman og óska eftir að einnig verði lokið við GSM-væðingu í Bjarnarfirði og Árneshreppi og á leiðinni norður. Sú mismunun sem íbúar dreifbýlisins verða fyrir eftir því hvort þeir búa við stofnveg eða ekki er óþolandi.