Fremur fámennt var á þorrablóti í Sævangi á laugardaginn, en þeir sem skelltu sér voru þó ekki sviknir af kræsingunum og skemmtuninni. Það voru Bitrungar sem sáu um skemmtiatriðin að þessu sinni og var söngur í hávegum hafður eins og jafnan þegar þeir koma saman. Bjarni Haraldsson spilaði fyrir dansi að loknum skemmtiatriðum og borðhaldi. Fréttavefurinn strandir.saudfjarsetur.is hefur komist yfir fáeinar myndir frá skemmtuninni.
![](wp-content/uploads/atburdir/2005/350-sveitatorri3.jpg)
![](wp-content/uploads/atburdir/2005/350-sveitatorri2.jpg)
![](wp-content/uploads/atburdir/2005/350-sveitatorri1.jpg)
Ljósm. Ásdís Jónsdóttir