Þorrablót var haldið á Borðeyri síðastliðinn laugardag þann 12. febrúar. Gestir voru óvenju margir og með eindæmum fjörugir. Skemmtiatriðin voru góð, þó bar af annáll sem Einar Georg Einarsson flutti, en hann er orðinn víðfrægur fyrir slíkar uppákomur. Hljómsveit Skúla Einarssonar S.M.S spilaði síðan fyrir dansi og stóð ballið fram undir morgun. Fólk skemmti sér og var í góðum fíling eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Þorrablótsnefndin
Sigrún Waage og Þorsteinn Sveinsson
Guðny Þorsteinsdóttir kynnir
Georg á Kjörseyri og Árni á Bálkastöðum
Drengjakórinn
Gestir í góðum fíling
Inga Dan.
Þorkell Zakaríasson