Á dögunum var sýning á handverki sem unnið hefur verið í félagsstarfi eldri borgara á Hólmavík í vetur. Sýningin var í aðstöðunni fyrir félagsstarfið í Félagsheimilinu á Hólmavík og var vel sótt. Einnig hefur verið boðið upp á vinnuaðstöðu fyrir félagsstarfið reglulega í smíðastofu Grunnskólans á Hólmavík í vetur. Umsjónarmenn með starfinu í vetur voru Ingibjörg Sigurðardóttir og Ingibjörg Emilsdóttir. Margt eigulegra og fallegra gripa var að finna á sýningunni sem var aðstandendum félagsstarfsins og handverksfólkinu öllu til sóma.
Ljósm. Jón Jónsson