Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is var á dögunum á ferð um Hrútafjörð og var ekki um að villast að sumarið var komið, sauðburður langt kominn og kindur komnar út á iðagræn túnin. Sérstaka athygli vakti firnafár af álftum sem voru á beit ásamt lambfénu hjá bændum. Á Borðeyri var líka líf og fjör og nóg að gera hjá starfsmönnum SG-verkstæðis, á meðan fréttaritari skoðaði sig um á eyrinni.
Borðeyri við Hrútafjörð
SG-verkstæði á Borðeyri
Álftir og kindur á beit á Valdasteinsstöðum
Borðeyri vorið 2008
Nýlegt sumarhús á Borðeyri – ljósm. Jón Jónsson