23/04/2024

Sundlaugin á Hólmavík lokuð tímabundið

580-sund-holma2

Í tilkynningu frá Strandabyggð kemur fram að því miður verður sundlaugin og heitu pottarnir á Hólmavík lokuð um óákveðinn tíma frá og með laugardeginum 1. mars. Vegna bágrar vatnsstöðu í lónum Landsvirkjunar er ekki hægt að afhenda svokallaða „ótrygga orku“, en sundlaugin á Hólmavík er ein af stofnunum Strandabyggðar með hagstæða samninga um kaup á slíku rafmagni. Ekkert er hægt að fullyrða um það hvenær hægt verður að opna sundlaugina að nýju, en íþróttahúsið verður áfram opið og sömuleiðis þreksalur og sturtur. Íþróttamiðstöðin verður alfarið lokuð sunnudaginn 2. mars.

Íbúar Strandabyggðar og aðrir gestir laugarinnar eru beðnir velvirðingar á þessu ástandi sem varir vonandi ekki lengi. Eins er beðist velvirðingar á þeim skamma fyrirvara sem er gefinn, en málið kom ekki upp fyrr en í gær.