02/05/2024

Sturla – hvar er tengingin?

Aðsend grein: Helga Vala Helgadóttir
Kæri Sturla. Nú þegar árið 2006 er senn á enda er ekki úr vegi að spyrja þig, ráðherra fjarskipta á Íslandi hvernig hátti með fjarskiptaþjónustu við landsmenn alla. Þú seldir fyrirtækið okkar, Símann, ekki alls fyrir löngu án þess að hafa komið því í kring að grunnþjónusta yrði tryggð um allt land. Það er nú svo kæri Sturla að landsmenn allir greiða sinn hlut í samfélagssjóðinn og ættu því að sitja við sama borð þegar kemur að grunnþjónustu eins og háhraðatengingu og farsímasambandi, en svo er alls ekki.

Nemendur grunnskóla á Snæfellsnesi, svo dæmi sé tekið, mega horfa út um gluggann í skólanum sínum, á ljósleiðarann sem liggur utan við girðinguna á skólalóðinni án þess að njóta þeirra gæða sem línan veitir. Þessir fimmtíu nemendur eiga, líkt og aðrir nemendur landsins, að afla sér heimilda fyrir verkefnin sín, kennararnir eiga að vera vel uppfærðir í nýjustu útgáfum námsefnis, auk þess að vera vel að sér í hinum ýmsu málum er snerta samfélög nær og fjær. En því miður þá fá þau ekki tenginguna inn fyrir húsið hjá sér og þaðan af síður inn á heimili sín í sveitinni. Það þykir nefnilega ekki hagkvæmt. Einkaaðilarnir sem keyptu Símann sjá sér enga hagsmuni í því að leysa vanda þessara örfáu einstaklinga, og ekki sást þú þér hag í því að leysa hann áður en þú seldir þessa mjólkurkú okkar. Beðið er eftir Fjarskiptasjóðnum sem á að leysa þessi verkefni, en hvenær kæri Sturla? Hvenær heldur þú að landsmenn allir fái að taka þátt í nútímasamfélaginu líkt og þú sjálfur í höfuðborginni okkar.

Ísland er ríkt land og hefur alla burði til að vera í framstu röð er varðar menntun.  OECD, efnahags og framfarastofnunin, segir að við mat á samkeppnisstöðu þjóða sé megináherslan lögð á menntun og árangur á sviði rannsókna og nýsköpunar. Við stærum okkur af því á góðum stundum hversu góð samkeppnisstaða okkar sé en það er eins og það hafi gleymst í tíð núverandi ríkisstjórnar að það dugir ekki einungis að mennta þá sem búa á suðvesturhorninu og útvöldum þéttbýlisstöðum. Komið hefur á daginn að í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur bilið milli íbúa höfuðborgar og landsbyggðar aukist. Mikill munur virðist vera á lengd menntunar hjá þessum hópum. Rúm 40% íbúa landsbyggðarinnar eru einungis með grunnskólapróf á meðan þessi hópur er rétt um 20% á höfuðborgarsvæðinu. Þessari þróun verður ekki snúið við nema með samstilltu átaki, við verðum að auka möguleika íbúa alls landsins til að sækja sér menntun í sinni heimabyggð. Þetta verður því miður ekki gert nema með því að koma á háhraðatengingu um allt land og það án tafar.

Ef ekki verður brugðist við þessu fljótt má vænta þess að innan fárra ára verði hér stéttskipt þjóð, annars vegar menntafólkið á mölinni og hins vegar hið minna menntaða sem dreifist á smærri staði út um land, án grunnþjónustu, án tengsla við umheiminn. Þetta er á þína ábyrgð herra samgönguráðherra og hefur verið lengi. Nú er lag, ríkissjóður gildur sem aldrei fyrr að sögn forsætisráðherra og skattgreiðendur á landsbyggðinni orðnir þreyttir á annars flokks þjónustu frá ykkur við Austurvöll.

Helga Vala Helgadóttir
Laganemi og fjölmiðlakona
Býður fram krafta sína í 2-3 sæti á lista Samfylkingar í NV kjördæmi.