06/05/2024

Stemmning á Kolaporti á Hólmavík

IMG_8362

Það var líf og fjör á Kolaporti á Hólmavík á sunnudaginn var. Það voru Danmerkurfarar í 8.-9. bekk sem stóðu fyrir framtakinu og margvíslegur skemmtilegur söluvarningur var þarna á boðstólum. Einnig var kaffihús á staðnum sem krakkarnir stóðu fyrir, svokallað Kolakaffi þar sem fá mátti kaffi og kakó, auk kræsinga. Yfir 20 sölubásar voru á staðnum og létu krakkarnir vel af sölunni og dagurinn var ljómandi skemmtilegur.

IMG_8389 IMG_8396 IMG_8387 IMG_8383 IMG_8382 IMG_8373 IMG_8367 IMG_8359 IMG_8364 IMG_8366