26/04/2024

Skólasetning á Hólmavík í dag

Grunnskólinn á Hólmavík verður settur í Hólmavíkurkirkju í dag, þriðjudaginn 22. ágúst klukkan 13:00. Að því loknu verður gengið í skólann og nemendur hitta umsjónarkennara sína. Íris Ósk Ingadóttir tómstundafulltrúi mun á skólasetningunni kynna samfelldan dag barna í 1.-4. bekk fyrir foreldrum og nemendum. Allir eru velkomnir.