29/04/2024

Skipulagsstofnun beðin að athuga vegalagningu

Tæki í GautsdalÁ fundi hreppsnefndar Reykhólahrepps í gær var tekið fyrir svarbréf frá Vegagerð ríksins vegna vegalagningar um Arnkötludal og Gautsdal. Hreppsnefnd hafði áður fundið að vinnubrögðum og vali á vegstæði og krafist skýringa á mun sem er á veglínunni eins og hún er nú, og þeirrar línu sem kynnt var í umhverfismati og framkvæmdaleyfi var gefið fyrir. Varð niðurstaða hreppsnefndar eftir að hafa kynnt sér svarbréfið að óska eftir áliti Skipulagsstofnunar ríksins á því hvort framkvæmdir séu í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Beggja vegna Arnkötludals eru menn að nokkru ósáttir við vegstæðið í Gautsdal og þær breytingar sem gerðar hafa verið á því frá upphaflegri hönnun. Sérstaklega finnst heimamönnum aðfinnsluvert hvernig vegurinn hefur verið færður út á fossbrún í Gautsdal, frá því sem var upphaflega kynnt. Telja menn að ef vegurinn verði þar sem hönnun Vegagerðarinnar gerir ráð fyrir og nýr vegur hefur nú verið lagður geti skapast slysahætta, algjörlega að óþörfu. Fossinn eigi til að fjúka upp af fossbrúninni í roki og þá geti skapast hálka og svellbunkar á öllu svæðinu í kring.