25/04/2024

Skemmtanalífið um helgina

KSH á HólmavíkNóg er um að vera í skemmtanalífinu á Hólmavík svona rétt fyrir jólin. Laugardaginn 18. desember verður Héraðsbókasafnið með auka opnunartíma frá kl. 14:00-15:00 svo að menn geti nú náð sér í góða bók til að lesa um jólin. Þaðan geta menn skellt sér beint í Kaupfélagið á Hólmavík (KSH) og hlustað á krakkakórinn syngja en sú dagskrá hefst kl. 15:00.

Um kvöldið verður síðan opið á Café Riis, diskótek frá kl. 23:00-03:00.

Sunnudaginn 19. desember er síðan hægt að skella sér á Jólamarkað Strandakúnstar í gamla Kaupfélagshúsinu á Hólmavík þar sem sönghópur flytur jólalög sem ættu að koma öllum í gott skap. Sú dagskrá hefst kl. 17:00, en markaðurinn er opinn alla daga frá 14:00-18:00. Einnig eru góðar líkur á að einhver hinna eldfornu jólasveina láti sjá sig þar á sunnudaginn.