19/04/2024

Skákhátíð á Ströndum


Á www.litlihjalli.is er frá því greint að heilmikil skákhátíð verður haldin á Ströndum dagana 22. til 24. júní, en þá verður efnt til skákviðburða á Hólmavík, Djúpavík, Trékyllisvík og Norðurfirði. Þetta er fimmta árið í röð sem sumarhátíð skákmanna er haldin í Árneshreppi. Meðal keppenda eru stórmeistarar og óðalsbændur, undrabörn og áhugamenn úr öllum áttum. Hátíðinni er ekki síst ætlað að kynna töfraheim Strandasýslu, einstætt mannlífið og hrífandi náttúruna.

Skákhátíðin hefst á Hólmavík föstudaginn 22. júní og um kvöldið er hið árlega tvískákmót í Hótel Djúpavík. Þar eru tveir saman í liði, og fjörið allsráðandi. Laugardaginn 23. júní er svo komið að Afmælismóti Róberts Lagerman, en meistarinn verður fimmtugur síðar í sumar. Róbert er sá skákmeistari sem oftast hefur heimsótt Árneshrepp, og hann hefur tekið þátt í fjölmörgum skákviðburðum í sveitinni. Róbert hefur um árabil verið meðal sterkustu skákmanna landsins, en hefur ekki síður unnið þrekvirki við að útbreiða fagnaðarerindi skáklistarinnar á Íslandi og Grænlandi.

Verðlaunafé á mótinu er:
1. verðlaun 30.000 kr.
2. verðlaun 15.000 kr.
3. verðlaun 10.000 kr.

Sérstök verðlaun:
Besti árangur kvenna 10.000 kr.
Besti árangur heimamanns (lögheimili í Strandasýslu) 10.000 kr.
Besti árangur 18 ára og yngri 10.000 kr.
Besti árangur 12 ára og yngri 10.000 kr.
Besti árangur 0-2000 stiga skákmanna 10.000 kr.
Fjölmörg önnur verðlaun verða veitt, meðal annars handverk og listmunir úr Árneshreppi.

Sunnudaginn 24. júní liggur leiðin í Kaffi Norðurfjörð. Þar verður nú í fimmta sinn teflt um hinn eftirsótta titil Norðurfjarðameistarans. Meðal fyrri handhafa eru Jóhann Hjartarson og Róbert Lagerman. Ríkjandi Norðurfjarðarmeistari er Gunnar Björnsson,forseti Skáksambands Íslands.

Skákhátíð á Ströndum hefur stofnað Facebook-síðu, en einnig er hægt að skrá sig hjá Hrafni hrafnjokuls@hotmail.com og Andreu andreamg@ruv.is, sem einnig veita frekari upplýsingar um ævintýraferð á Strandir.