29/03/2024

Sirkus á Sauðfjársetrinu í Sævangi

Miðvikudaginn 18. júlí klukkan 18:30 ætlar sirkushópurinn Melodic Objects að vera með sýningu á Sauðfjársetrinu í Sævangi við Steingrímsfjörð á Ströndum. Frír aðgangur og öll velkomin sem áhuga hafa. Á sýningunni koma fram sex jogglarar og einn tónlistarmaður. Listamennirnir eru víða að úr heiminum, en ekki er nauðsynlegt að skilja ensku til að njóta sýningarinnar – tónlistin og hið sjónræna skipta mestu máli. Veitingastofan Kaffi Kind á Sauðfjársetrinu verður opin fyrir og eftir sýninguna og sérstakt tilboð á brauðsúpu með rjóma í tilefni dagsins! Í fréttatilkynningu frá Sauðfjársetrinu og Náttúrubarnaskólanum er fólk hvatt til að missa ekki af þessu fjöri og hvatt til að skella sér á tónleika með Svavari Knút og Kristjönu Stefáns um kvöldið á Hólmavík.