28/03/2024

Ráðstefna um Spánverjavígin í Dalbæ á morgun

Spánverjavígin verða umfjöllunarefni í Snjáfjallasetrinu í Dalbæ við Ísafjarðardjúp á morgun, Jónsmessudag. Þá verður haldið málþing um þennan ótrúlega atburð sem átti sér stað á 17. öld og teygði sig um mestanpart Vestfjarðakjálkans. Málþingið hefst kl. 15:00 og eru allir velkomnir. Fjöldi fyrirlesara, íslenskir sem erlendir, koma fram og fjalla um vígin frá öllum sjónarhornum og sýning um Spánverjavígin verður afhjúpuð. Á dagskrá er einnig vettvangsskoðun með leiðsögn á slóðir víganna á og við Snæfjallaströnd þar sem mestu drápin fóru fram. Jónsmessukvöldvaka verður síðan haldið um kvöldið og hefst kl. 20:00 og þar koma m.a. fram þeir Steindór Andersen sem kveður rímur og Elvar Logi Hannesson leikari og flytur frumsaminn leikþátt byggðan á upplifun Jóns lærða á Spánverjavígunum.

Á málþinginu í Dalbæ og á sýningunni verða samskiptum Íslendinga og Spánverja/Baska á 17. öld gerð skil; fornleifarannsóknum sem tengjast samskiptum við Spánverja/Baska, sögulegum forsendum Spánverjavíganna og eftirmálum þeirra, hvalveiðum Baska og viðskiptatungumálinu lingua franca, útbreiðslu þess og þýðingu fyrir samfélag þess tíma.

Fyrirlesarar verða Selma Huxley, sem hefur áður komið hingað til lands og hefur í áratugi rannsakað sjóferðir Spánverja til Íslands og Nýfundnalands og hefur sérstaklega rannsakað Spánverjavígin á Vestfjörðum og sögu skipstjóra þeirra, Martins de Villafranca.

Einnig flytur fyrirlestur Michael Barkham, sem er doktor við Harvard og hefur sérstaklega rannsakað hvalveiðar Spánverja; Henrike Knörr, formaður Basknesku Akademíunnar, sem hefur rannsakað viðskiptatungumálið "lingua franca" sem þróaðist í samskiptum Spánverja og Íslendinga á 17. öld; Torfi Tulinius, formaður verkefnisins Vestfirðir á miðöldum, mun fjalla um það hvort víg Spánverjanna hafi verið fjöldamorð.

Þá mun Magnús Rafnsson, sagnfræðingur hjá Strandagaldri, kynna fornleifarannsóknir í Hveravík í Steingrímsfirði sem hafa leitt í ljós leifar spænskrar hvalveiðistöðvar og hann mun einnig fjalla um Jón lærða, sem skrifaði rit um Spánverjavígin skömmu eftir atburðina; Már Jónsson sagnfræðingur mun fjalla um Ara í Ögri sem stjórnaði aðförinni að Spánverjum; Trausti Einarsson sagnfræðingur mun fjalla um hvalveiðar Spánverja við Ísland og Sigurður Sigursveinsson mun fjalla um Spánverjavígin og Martin de Villafranca.

Á Jónsmessukvöldvöku kl. 20 um kvöldið flytur Steindór Andersen kveðskap eftir Jón lærða og Elfar Logi Hannesson flytur frumsaminn leikþátt sem byggir á upplifun Jóns lærða á Spánverjavígunum.

  • Selma Huxley: Um Martin de Villafranca
  • Michael Barkham: Um hvalveiðar Baska í Norðurhöfum
  • Henrike Knörr: Um viðskiptatungumálið lingua franca og hvalveiðar Baska
  • Már Jónsson: Um Ara í Ögri
  • Trausti Einarsson: Hvalveiðar Baska við Ísland
  • Sigurður Sigursveinsson: Um Spánverjavígin
  • Magnús Rafnsson: Um Jón lærða og leifar hvalveiðistöðvar í Steingrímsfirði
  • Torfi Tulinius: Voru Spánverjavígin fjöldamorð?