05/05/2024

Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna

Ferðamálastofa hefur auglýst eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna fyrir árið 2007. Verðlaunin hefur stofnunin veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi. Ferðaþjónustan byggir afkomu sína að miklu leyti á umhverfislegum gæðum og eru verðlaunin hugsuð sem hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar.

Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og félagslegra þátta geta verið tilnefndir, jafnt einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða sveitafélög. Vefurinn strandir.saudfjarsetur.is hvetur Strandamenn eindregið til að tilnefna þau fyrirtæki og sveitarfélög hér á heimaslóðum sem hafa staðið sig vel á þessu sviði.

Tilnefningar sendist til skrifstofu Ferðamálastofu, Strandgötu 29, 600 Akureyri eða með tölvupósti á netfangið valur@icetourist.is fyrir 30. október næstkomandi.