22/11/2024

Orkubúið stækkar og endurnýjar Mjólkárvirkjun

Orkubú Vestfjarða hyggst setja upp nýja 1,15 MW virkjun sem staðsett verður við Borgarhvilftarvatn fyrir ofan Mjólkárvirkjun í Arnarfirði. Samið hefur verið um kaup á vélbúnaði og stefnt að útboði framkvæmda vegna þessarar nýju virkjunar á næstu mánuðum og að hún komist í rekstur undir lok þessa árs. Þá hefur verið tekin ákvörðun um endurnýjun 5,4 MW vélar í Mjólkárvirkjun með nýrri 7 MW vél og eru þær framkvæmdir fyrirhugaðar á árinu 2011 og er reiknað með gangsetningu nýju vélarinnar í vetrarbyrjun 2011. Kostnaður við þessar framkvæmdir er um það bil milljarður eða þúsund milljónir króna. Verða framkvæmdirnar fjármagnaðar með auknu aðhaldi í rekstri, verulegum samdrætti í öðrum fjárfestingum næstu ár og hækkunum á verðskrá.

Í fréttatilkynningu frá Orkubúi Vestfjarða kemur fram að Orkubúið hefur um langt skeið fjármagnað allar framkvæmdir sínar með fé frá rekstri og er fyrirtækið því skuldlaust ef frá eru taldar eldri lífeyrisskuldbindingar. Þessi stefna hefur leitt til þess að fjármagnskostnaður, sem nú er að sliga flest orkufyrirtæki landsins, er lítill sem enginn og unnt hefur verið að reka fyrirtækið með hagnaði á undanförnum árum.

Orkubúið hyggst fjármagna þær með fé frá rekstri, á næstu þremur árum, þannig að ekki þurfi að taka langtímalán. Samkvæmt fyrirliggjandi áætlun er unnt að gera þetta með eftirfarandi aðgerðum:

1.       Aukið aðhald í rekstri OV. Rekstraráætlun OV fyrir þetta ár gerir ráð fyrir allur kostnaður nema orkukaup verði sá sami og hann var 2009.
2.       Dregið verði verulega úr almennum fjárfestingum OV á sama tíma og virkjunarframkvæmdirnar standa yfir. Gert er ráð fyrir að aðrar fjárfestingar verði um 100 milljónir króna á ári næstu tvö ár.
3.       Hóflegum hækkunum á verðskrám. Gert er ráð fyrir að verðskrár fylgi verðlagsþróun.