26/04/2024

Opið hús hjá Orkubúinu

Á sunnudaginn, þann 26. ágúst, verða liðin 30 ár frá því að undirritaður var sameignasamningur um Orkubú Vestfjarða af Gunnari Thoroddsen þáverandi iðnaðarráðherra og fulltrúum vestfirskra sveitarfélaga. Af þessu tilefni verður opið hús hjá Orkubúi Vestfjarða á Hólmavík, í Mjólkárvirkjun og á Ísafirði. Á síðastnefnda staðnum verður Tungudalsvirkjun formlega tekin í notkun, en á Hólmavík verður nýtt skrifstofuhús og verkstæði á Skeiði sýnt í tilefni dagsins frá 14-17. Boðið verður upp á léttar veitingar og glaðning fyrir börnin. Allir eru hvattir til að mæta og fagna þessum tímamótum með Orkubúsmönnum.