04/05/2024

Ný hljóðbók – Þjóðsögur af Ströndum

Tröllin í KollafirðiKómedíuleikhúsið á Ísafirði hefur nú gefið út hljóðbókina Þjóðsögur af Ströndum. Þetta er fjórða hljóðbókin sem leikhúsið gefur út en hinar fyrri eru Þjóðsögur úr Vesturbyggð, Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ og loks Þjóðsögur úr Bolungarvík. Sú fyrsta er uppseld og aðeins eru örfá eintök eftir af Þjóðsögum úr Ísafjarðarbæ. Það má því með sanni segja að hljóðbækurnar hafi hitt í mark enda er hér um að ræða vandaða útgáfu á gömlu góðu íslensku þjóðsögunum.

Strandir eru mjög frægt og þekkt þjóðsagnasvæði þar sem álfar, draugar, tröll og ýmsar furðuverur hafa verið á sveimi lengur en elstu menn muna. Á þessari hljóðbók, Þjóðsögur af Ströndum, les Elfar Logi Hannesson leikari úrval sagna af Ströndum.

Sögurnar eru sóttar í þjóðsagnasöfn Arngríms F. Bjarnasonar, Helga Guðmundssonar og Jóns Árnasonar og er skipt niður í fimm flokka: Álfa- og huldufólkssögur, Draugasögur, Galdrasögur, Tröllasögur og loks Ýmsar sagnir.

Þjóðlegu hljóðbækur Kómedíuleikhússins hafa fengið úrvals góðar viðtökur og víst er að Þjóðsögur af Ströndum er enn ein perlan í hljóðbókaútgáfu leikhússins. Hljóðbækur Kómedíuleikhússins fást á heimasíðu Kómedíuleikhússins www.komedia.is, en einnig í verslunum Eymundsson, Galdrasafninu á Ströndum og víða um Vestfirði.