19/04/2024

Norðurljós í Tjarnarlundi

Kvennakórinn Norðurljós frá Hólmavík heldur tónleika í Tjarnarlundi í dag, föstudaginn 16. apríl. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og er aðgangseyrir 1.500 kr. Á dagskrá eru ýmis létt lög, en stjórnandi kórsins er Sigríður Óladóttir og undirleikari er Viðar Guðmundsson. Allir eru hjartanlega velkomnir og eru Dalamenn og nærsveitungar hvattir til að láta ekki þessar hressu nágrannakonur sínar af Ströndum framhjá sér fara.