Keppni gengur vel á Unglingalandsmóti UMFÍ á Egilsstöðum sem sett var í gær. Strandamenn eru fjölmennir á mótinu og mikill fjöldi fylgir hverjum keppenda, en þeir eru samtals 29 sem eru skráðir í ýmsar greinar, flestir þó í fótbolta. Ljósmyndari strandir.saudfjarsetur.is leit við á boltavellinum og var viðstaddur setningarathöfnina í gær þar sem liðin marseruðu inn á svæðið, landsmótseldurinn var kveiktur og bautasteinn um mótið afhjúpaður. Í risastjóru samkomutjaldi og á setningarathöfninni fór eins manns hljómsveitin Jón Jónsson á kostum og fleiri atriði voru til skemmtunar. Fleiri myndir frá mótinu má sjá á www.123.is/hss.
Unglingalandsmót á Egilsstöðum – ljósm. Jón Jónsson