05/05/2024

Námskeið um fjárhúsbyggingar og vinnuhagræðingu

Gráskeggur - ljósm. Guðbrandur SverrissonFöstudaginn 7. mars næstkomandi verður haldið námskeið um fjárhúsbyggingar og vinnuhagræðingu í Sævangi á Ströndum. Skráningarfrestur er til 29. febrúar þannig að nú verða menn að vera handfljótir að hugsa og skrá sig svo, hjá endurmenntun@lbhi.is. Á námskeiðinu verður farið yfir þær kröfur sem gerðar eru til aðbúnaðar sauðfjár og eftirlits. Ræddar verða kröfur og markmið við hönnun fjárhúsa svo sem varðandi ýmis stærðarmál og gerð innréttinga. Snert verður á ákvæðum byggingarreglugerða. Farið yfir vinnuframlag og kostnað við hirðingu miðað við mismunandi fóðrunartækni.

 Þá verður ávinningur af breytingum á fóðrunartækni ræddur og þættir er því fylgja svo sem áhrif á kröfur til heygæða og heymagns. Einnig er gerð verkleg æfing þar sem gerð er rissteikning þar sem hægt er að vinna með eigið fjárhús. 

Umsjón og kennsla: Sigurður Þór Guðmundsson
Tími: Fös. 7. mars kl. 10:00-17:30 (8 klukkustundir), Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum.
Verð: 14.500.- Hægt er að sækja um styrk til niðurgreiðslu námskeiðsgjalds í Starfsmenntasjóð bænda.