04/10/2024

Námskeið um verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu

Námskeið á vegum Útflutningsráðs um verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu í
samvinnu við KPMG og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða verður haldið í
Háskólasetrinu á Ísafirði, stofu 1, miðvikudaginn 5. nóv. n.k frá kl 13-17. 
Námskeiðið mun fara fram í gegnum vefbúnað á sama tíma í Þekkingarsetrinu Skor á
Patreksfirði og Grunnskólanum á Hólmavík. Á  námskeiðinu verður fjallað um áhrif
mismunandi aðferða á áætlaðan rekstrar- og efnahagsreikning. Lögð verður áhersla
á að öll umfjöllun sé einföld og aðgengileg og mun allt efni og framsetning þess
byggja á því að þátttakendur hafi fjölþættan bakgrunn og mismikla þekkingu á
bókhaldi, rekstraráætlunum og ársreikningum. 

Að loknu námskeiði ættu þátttakendur að vera betur undir það búnir að leggja
raunsætt mat á hugmyndir sínar um verðlagningu og uppbyggingu þjónustuframboðs,
hvað er hagkvæmt og hvað hlutirnir þurfa að kosta. Ferðaþjónustuaðilar eru
sérstaklega hvattir til að nýta sér námskeiðið. Námskeiðið er styrkt af
Vaxtarsamningi Vestfjarða og er aðgangur ókeypis. Skráning og allar nánari
upplýsingar gefur Ásgerður Þorleifsdóttir hjá Atvest í síma 450 3053 eða á
netfangið asgerdur@atvest.is