29/04/2024

Námskeið um próftækni og prófkvíða í Þróunarsetrinu

Námskeið um próftækni og prófkvíða verður haldið í Þróunarsetrinu á Hólmavík á mánudaginn kemur á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og stendur frá kl. 17-20. Fjallað verður um mismunandi gerðir prófa s.s. ritgerða og krossapróf og hvað þarf sérstaklega að hafa í huga við hverja prófgerð. Skoðaðar verða mismunandi aðferðir við prófundirbúning, s.s. lestraraðferðir, tímaskipulagningu og sjálfsmat, m.a. með vinnu við kortlagningu hvers og eins í gegnum svokallaðan námshring. Einnig verður leitast við að greina helstu orsakaþætti prófkvíða og leiðir til að ráðast gegn honum. 

 

Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi kennir á námskeiðinu sem verður haldið í Þróunarsetrinu á Hólmavík að Höfðagötu 3. Einnig verður hægt að fá einstaklingsviðtöl í náms- og starfsráðgjöf þennan dag og eru tímapantanir hjá Birni í síma 899-0883.

Nánar má fræðast um námskeiðið á vef Fræðslumiðstöðvarinnar www.frmst.is.