05/05/2024

Námskeið í Taekwondo

 Í sumar verður boðið upp á Taekwondo-námskeið á Hólmavík. Íþróttin á rætur
sínar í Kóreu og er einstaklega skemmtileg og öðruvísi bardaga- og
sjálfsvarnaríþrótt sem hæfir öllum frá 6 ára aldri. Námskeiðin standa yfir í fjórar vikur. Þau hefjast miðvikudaginn
20. júní, en skráningu verður að vera lokið sunnudaginn 17. júní. Til að skrá sig eða
fá nánari upplýsingar skal hafa samband í s. 659-1731 eða á netfangið
ingiberla@gmail.com. 

Þátttakendum verður skipt í 6-12 ára og 13-16 ára hópa, en einnig er boðið uppá fullorðinsnámskeið fyrir foreldra. Þjálfari námskeiðsins er Ingibjörg Erla Árnadóttir, 2 svartar rendur á rauða belti. Aðstoðarmenn eru Arnar Sigurðsson og Steinn Ingi Árnason. Íþróttin byggist fyrst og fremst á sjálfsvörn þar sem fæturnar eru í aðalhlutverki. Taekwondo er aðallega gerð fyrir það að kunna að verja sig, ekki til þess að læra að slást eða meiða andstæðinginn.
Verð fyrir námskeiðið er aðeins kr. 4.900 fyrir 6-12 ára, 5.900 fyrir 13-16 ára og 6.900 fyrir fullorðna. Veglegur afsláttur er gefinn ef fleiri en einn aðili úr sömu fjölskyldu tekur þátt – ef fleiri en tveir æfa er bara borgað fyrir tvo úr sömu fjölskyldu. Fimm manna fjölskylda þyrfti þá bara að borga fyrir tvo dýrustu. Strandamenn eru hvattir til að nýta sér þetta flotta námskeið til hins ítrasta!