Nemendur í Grunnskólanum á Hólmavík héldu árshátíð sína í vikunni við mikinn fögnuð áhorfenda og var félagsheimilið á Hólmavík þétt setið. Allir bekkir skólans höfðu æft og undirbúið frumsamin leik- og söngatriði með dyggri aðstoð kennara sinna og voru mörg þeirra frumleg og skemmtileg. Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is var á staðnum með myndavélina og tók myndir af mörgum atriðum.
Árshátíð – ljósm. Ester Sigfúsdóttir