20/04/2024

Menningartengd námskeið á Hólmavík og Reykhólum

Frá því er sagt á reykholar.is að Endurmenntun Háskóla Íslands hefur auglýst menningartengd námskeið sem kennd verða í gegnum fjarfundabúnað. Námskeiðin bjóðast í fjarfundi á Hólmavík og Reykhólum ef næg þátttaka fæst. Einar Kárason rithöfundur kennir námskeiðið Leiðarvísir að Sturlungu þar sem hann endursegir með eigin orðum helstu viðburði og leikendur á
sviði 13. aldar. Aðaláhersla er lögð á Örlygsstaðabardaga og langan
aðdraganda hans, Flóabardaga og að lokum Flugumýrarbrennu, þar sem hann
leiðbeinir inn um bakdyr sem opnast að veröld þessarar mögnuðu bókar.
Námskeiðið er kennt þrjú miðvikudagskvöld, 11., 18. og 25. nóvember kl.
20.15-22.15.


Jón Björnsson kennir á námskeiðinu Pílagrímsleiðin til Santiago de Compostella. Þar mun Jón fjalla um Jakobsveginn og söguna sem
tengist þessari leið, svo sem dýrlinga og helga dóma, pílagríma og
pílagrímsferðir og trú og táknfræði miðaldakirkjunnar. Námskeiðið
verður kennt þrjú kvöld, mánudag 26. október, miðvikudag 28. október og
mánudag 2. nóvember kl. 20.15-22.15.

Nánari upplýsingar og skráning eru hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, annað hvort á vef miðstöðvarinnar eða í síma 456 5025.