Starfsgreinasamband Íslands og Matvís, Matvæla og veitingafélag Íslands halda opið málþing á Hótel Ísafirði 24. september 2009 um framtíðarsýn í ferðaþjónustu. Málþingið, sem er haldið í samvinnu við Ferðamálsamtök Vestfjarða og Markaðsstofu Vestfjarða mun leitast við að svara spurningum um það hvers virði ferðaþjónustan er í atvinnusköpun á Íslandi og hvað þurfi til að fjölga störfum í greininni og gera þau verðmeiri. Frummælendur koma úr röðum atvinnulífsins, háskólasamfélagsins, launþegahreyfingarinnar og stjórnsýslunnar auk þess sem iðnaðarráðherra mun fytja ávarp.
Eftir hverja framsögu verða fyrirspurnir og stuttar umræður. Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður VerkVest stjórnar málþinginu.Málþingið gæti orðið mikilvægt innlegg í þá umræðu sem hefur orðið um stöðu ferðaþjónustunnar í þeim efnahagsþrengingum sem herja á landann. Þá ætti einnig að vera lag hjá vestfirskum ferðaþjónum að taka virkan þátt í umræðum á málþinginu með það að leiðarljósi að efla uppbyggingu ferðaþjónustu í heimsbyggð.
Skráning á málþingið fer fram á skrifstofu VerkVest í síma 4565190 eða finnbogi@verkvest.is.
Dagskrá málþingsins verður þannig:
Staður: Hótel Ísafjörður, fimmtudaginn 24.09.09
Dagskrá:
Kl. 9:30 Málþingið sett, Niels Sigurður Olgeirsson formaður Matvís
Kl. 9:40 Hvers virði er ferðaþjónustan? Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri SAF
Kl. 10:30 Ferðaþjónustan á Vestfjörðum, tækifæri og hindranir. Áslaug Alfreðsdóttir, hótelstjóri og stjórnarmaður í Ferðamálsamtökum Vestfjarða fjallar um reynslu Vestfirðinga. Staðreyndir og staða mála ásamt stefnumótunarferli Atvest, MV og FMSV. Jón Páll Hreinsson forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða.
Kl. 11:45 Ferðaþjónustan og störfin. Skúli Thoroddsen framkvæmdastjóri SGS mun fjalla um fjölbreytni starfa og ný tækifæri í félagslegri ferðaþjónustu.
Kl. 12:30 Léttur hádegisverður
Kl. 13:30 Menntun í ferðaþjónustu frá sjónarmiði aðila vinnumarkaðarins. Guðmunda Kristinsdóttir, sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins fjallar um menntun í ferðaþjónustu og tengsl óformlega skólakerfisins við hið formlega.
Kl. 14:00 Arðsemi, úthald, afköst. Guðrún Helgadóttir, prófessor og deildarstjóri ferðamáladeildar við Háskólann á Hólum, talar um mikilvægi þess að styrkja grunngerð og innviði ferðaþjónustunnar.
Kl. 14:40 Hver er framtíðarsýnin og hvernig náum við henni? Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri fjallar um spurninguna.
Kl. 15:30 Umræður
Kl. 16.00 Ávarp iðnaðaráðherra og ráðherra ferðamála, Katrín Júlíusdóttir.
Málþingsslit, Kristjáni Gunnarsson formaður SGS
Kl. 16.30 Óvissuferð með kvöldverði.
Ekkert þátttökugjald er á málþinginu, en málþingsgestir sem taka þátt í óvissuferð með kvöldverði og gista á Hótel Ísafirði greiða kr. 15.000. Þá er hádegisverður og gisting einnig innifalinn. Sjá einnig vef SGS.