26/04/2024

Ljósmyndanámskeið fyrir börn

300-solarlag1Mánudaginn 27. des. kl. 15-16 hefst ljósmyndanámskeið fyrir nemendur á grunnskólaaldri á Hólmavík. Það eru þau Tinna Schram ljósmyndanemi og Brian Berg ljósmyndari frá Danmörku sem nú eru gestir í Skelinni – lista- og fræðimannaíbúð Þjóðfræðistofu sem bjóða upp á námskeiðið. Það stendur fram á fimmtudag 30. des. á sama tíma alla daga og verður sniðið eftir getu og þörfum hvers og eins. Hugmyndin er að veita þátttakendum tækifæri til að sjá umhverfi sitt í nýju ljósi og þróa með sér betri ljósmyndatækni. Sett verður upp myndavefsíða, þátttakendur (sem vilja) fá af sér flotta andlitsmynd og á lokadegi verður öllum þátttakendum boðið upp á kakó og vöfflur í Skelinni.


Námskeiðsgjald er 3000 kr. fyrir einstakling, námskeiðið verður haldið í Skelinni og lýkur svo með glæsilegri sýningu á óvæntum stað sem tilkynnt verður um síðar!