28/03/2024

Katherine heldur erindi um söfnun John Levy

-Miðvikudagnn 26. ágúst næstkomandi mun Katherine M. Campbell, lektor í þjóðfræði við Edinborgarháskóla, sækja Þjóðfræðistofu heim á Strandir. Þar mun hún segja frá nýhöfnu samstarfsverkefni um hinn mikilvirka safnara John Levy og söfnun hans hér á landi.  Levy safnaði þjóðfræðum og tónlist um allan heim en gríðarlegt safn liggur eftir hann í Edinborgarháskóla. Söfnun hans og upptökur hér á landi vöktu mikla athygli á sínum tíma og gátu meðal annars af sér útgáfu hljómplatna með íslenskum þjóðlögum og kvæðasöng. Flutt verða  sýnishorn af upptökum Levy. Þar sem margir eru óvanir hinum fagra skoska hreim verður einnig stiklað á stóru á hinu ástkæra ylhýra. Erindið fer fram á Kaffi Galdri á Hólmavík kl. 20.00.