30/04/2024

Jón og séra Jón unnu Einarinn

Heimildamyndin Jón og séra Jón var ein af þeim myndum sem sýndar voru á hátíðinni Skjaldborg sem haldin var nú um Hvítasunnuhelgina á Patreksfirði. Steinþór Birgisson gerði myndina sem sýnd var fyrir troðfullu húsi, en allar tökur er frá þeim tíma sem séra Jón Ísleifsson bjó í Árnesi í Trékyllisvík og þjónaði Árnessókn. Áður þjónaði Jón um tíma í Sauðlauksdal. Myndin fékk góðar viðtökur og hlaut meðal annars hin eftirsóttu áhorfendaverðlaun Skjaldborgarhátíðarinnar sem besta myndin að þessu sinni, en verðlaunin eru kölluð Einarinn.  

Í myndinni er einkum fjallað um baráttu séra Jóns fyrir að fá að búa áfram í Árnesi og nytja hlunnindin, eftir að hann hættir sem sóknarprestur. Sagðar eru af honum margvíslegar sögur, sannar og lognar. Glíma séra Jóns við geistleg yfirvöld og söfnuð hans í Árnessókn er þó ekki endilega í brennidepli í myndinni. Miklu fremur er athyglinni beint að persónu Jóns sjálfs og glímu hans við sjálfan sig, sérvisku sína og bresti.

Augljóst er að myndin á eftir að vekja mikla athygli og umræðu þegar hún verður sýnd opinberlega.