28/04/2024

ATH: FRESTAÐ – Jólasöngleikurinn Litli engill

Hólmavíkurkirkja snjór

ATH: FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN TÍMA VEGNA VEIKINDA.
Eldri börnin í leikskólanum Lækjarbrekku og nokkrir krakkar úr fyrstu bekkjum Grunnskólans á Hólmavík ætla að sýna jólasöngleik á mánudaginn 16. desember kl. 16:30. Um er að ræða samstarfsverkefni Hólmavíkurkirkju og leikskólans Lækjarbrekku. Söngleikurinn ber nafnið Litli engill og er þýddur úr ensku og sýndur nú í fyrsta skipti á íslensku. Söngvarar og leikarar eru á aldrinum 4-10 ára. Aðgangur er ókeypis en þeir sem vilja styðja Hjálparstarf kirkjunnar geta sett aura í bauk.