22/12/2024

Jólaljósin

Hafnarbraut 22 á HólmavíkNú þegar tíu dagar eru til jóla þá er orðið mjög jólalegt um að litast víðast hvar á Hólmavík. Margir íbúar hafa skreytt hús sín og garða glæsilegum jólaljósum og það er gaman að sjá hvað bætist við jólaskreytingarnar frá ári til árs.

Jólaljósin lýsa upp skammdegið og eru sérstakur gleðigjafi þegar myrkrið grúfir yfir og lítill snjór er á jörðinni til að lýsa upp í skammdeginu. Ljósmyndin hér til hliðar er af Hafnarbraut 20 en íbúar þessa húss sem og fjölda annarra í kauptúninu hafa lagt mikinn metnað í að lýsa upp tilveruna fyrir jólin.

Það er skemmtilegt að ganga um kauptúnið í rökkrinu og ekki laust við að barnsleg tilhlökkun komi upp í huganum við að skoða margar skreytingarnar.