Það var að venju mikið um dýrðir á karaokekeppni Braggans, sem haldin var um síðustu helgi. Alls voru keppnisatriðin níu, en þátttakendur og söngvarar miklu fleiri, því stundum var fjölmennt á sviðinu. Það var Íris Guðbjartsdóttir sem keppti fyrir Klúkubúið sem sigraði í keppninni að þessu sinni, en í öðru sæti varð atriði Hólmadrangs þar sem Oddur, Hekla, Björk og Kristbergur sungu og bræðurnir Hjörtur og Rósmundur tróðu upp ásamt mörgum fleirum. Atriði Hólmadrangs var líka valið skemmtilegasta atriðið sem þykir nokkurs virði og mikill heiður á Ströndum. Troðfullt hús var í Bragganum og allir skemmtu sér hið besta.
Karaeoke-keppni 2015 – ljósm. Jón Jónsson.