Keppnin um hvaða lag verður einkennislag Hamingjudaga árið 2011 fer fram í Félagsheimilinu á Hólmavík kl. 20:00 í kvöld. Nú liggur ljóst fyrir hverjir eru flytjendur og hvað lögin í lagasamkeppni Hamingjudaga heita. Lögin eru sex talsins, en áhorfendur í sal fá að kjósa á milli laganna. Aðgangseyrir er aðeins kr. 1.000.- fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri. Atkvæðaseðill fylgir hverjum keyptum miða. Hér fyrir neðan gefur að líta hverjir flytja lögin í kvöld, hvað þau heita og hver dulnefni höfunda eru:
Heiti lags |
Flytjandi |
Höfundur |
Koss á kinn |
Arnar Snæberg Jónsson |
Fyrsti apríl |
Hamingjan byrjar hér |
Bjarki Einarsson og Aðalheiður Lilja Bjarnadóttir |
Cat Brothers |
Lífshamingjan |
Arna Þorsteins |
Fjóla |
Vornótt á Ströndum |
Aðalheiður Lilja Bjarnadóttir og Elín Ingimundardóttir |
Zombie |
Hamingjan |
Svanhildur Garðarsdóttir og Dagný Hermannsdóttir |
Mikki og Mína |
Viltu kannski kyssa mig? |
Ólafur Sveinn Jóhannesson |
Lappi og Limbó |