04/05/2024

HeyHey sumarfjör á Hólmavík í dag

Í dag, miðvikudaginn 12. júlí kl. 17:00, ætla krakkarnir sem hafa verið í Skapandi sumarstörfum í samstarfi Náttúrubarnaskólans og Strandabyggðar að halda sumarfjörs viðburð í Kirkjuhvamminum á Hólmavík. Viðburðurinn heitir HeyHey – sumarfjör á Hólmavík og það er ókeypis að koma og leika með og allir eru velkomnir. Farið verður í skemmtilega leiki og vatnsrennibraut fyrir alla káta krakka verður á svæðinu. Reipitog, Kubbur, Sendu vatnið og fleiri leikir. Endilega komið og hafið gaman með okkur! segir í tilkynningu krakkanna.