20/04/2024

Galdraráðstefna í Bjarnarfirði

300-kotbyli-kerlingHeilmikil ráðstefna um galdra og samfélag verður haldin dagana 1.-2. september næstkomandi á Laugarhóli í Bjarnarfirði. Ráðstefnan er haldin á vegum verkefnisins Vestfirðir á miðöldum, en að því stendur fjöldi stofnanna á sviði fræða og rannsókna og er Strandagaldur ein af þeim. Bæði erlendir og innlendir fyrirlesarar verða á ráðstefnunni í Bjarnarfirði sem verður opin öllum sem áhuga hafa á efninu. Dagskráin er birt hér að neðan.

Ráðstefnan ,,Galdrar og samfélag” að Laugarhóli í Bjarnarfirði

Föstudagur 1. september 2006

13:00  Setning ráðstefnu í Galdrasafninu á Hólmavík.
a)      Kynning á safninu > Sigurður Atlason, framkvæmdastjóri
b)      Kynning á svæðinu > Jón Jónsson, þjóðfræðingur

14:30  Haldið að Laugarhóli, gestir koma sér fyrir.

Fyrirlestrar:

16:00  Inngangur > Torfi H. Tulinius, Háskóli Ísland > Ráðstefnustjóri.

16:10  Neil Price, Universititet i Oslo > „The archaeology of magic in Viking Age Scandinavia.“

16:50  Helga Kress, Háskóla Íslands > „Óþarfar unnustur áttu.” Um samband karlmennsku, kvennafars og fjölkynngi í Íslendingasögum.

17:30  Sverrir Jakobsson, Háskóli Íslands > „Galdur og forspá í ríkisvaldslausu samfélagi.“

19:00  Matur

20:30  Heimsókn í Kotbýli kuklarans.

Laugardagur 2. september 2006

10:00  Ármann Jakobsson, íslenskufræðingur > „Hvað er tröll nema það?“

10:40  Már Jónsson, Háskóla Íslands > „Ákvæði Jónsbókar um galdra: uppruni og áhrif.“

11:20  Kaffi

11:40  Stephen A. Mitchell, Harvard University > „The ‘pactum cum diabolo’ and Nordic Witchcraft.“

12:20  Rune Blix Hagen, Universitetet i Tromsø > „Shamanism, Sami magic and witch-trials in Arctic Norway during the 17th Century.“

13:00  Matur

14:00  Helgi Þorláksson, Háskóla Íslands >  Uppsprettur brunnur alls djöfuls í þeirri sveit. Vestfjarðakjálkinn, galdramál og Brynjólfur biskup.

14:40  Dr. Ólína Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur > ,,Meingjörð eða góðgjörð – til hvers er galdur?”

15:20  Kaffi

15:40  Magnús Rafnsson, Strandagaldri > ,,Hvaða galdur? Ólík viðhorf alþýðu og yfirvalds.”

16:20  Samantekt og almennar umræður.

19:00  Hátíðarkvöldverður

22:00  Megas og Súkkat  (Aðgangseyrir verður ca. 500-1000 kr.)

Sunnudagur 3. september 2006

Frjálst val:
10:00-15:00  Ferð í Djúpuvík og Trékyllisvík á slóðir Guðsgjafarþulu.

Skráning er á netinu, www.midaldir.is. Ekkert ráðstefnugjald er innheimt, en verð á gistingu og mat að Laugarhóli má sjá á skráningarblaði.

Nánari upplýsingar veita:

Magnús Rafnsson, arnlin@snerpa.is (451-3384)
Andrea S. Harðardóttir, andrea@snerpa.is (848-2068)

Að verkefninu Vestfirðir á miðöldum standa Hugvísindastofnun HÍ (Miðaldastofa), Senter for studier i vikingtid og nordisk middelalder í Osló, Fornleifastofnun Íslands, Strandagaldur, Náttúrustofa Vestfjarða, Byggðasafn Vestfjarða, Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti, Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri, Snjáfjallasetur, Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða.

Markmið hópsins sem að verkefninu stendur, er að auka þekkingu á sögu Vestfjarða frá landnámi til 1800; að skoða sérstaklega samfélagsþróun með tilliti til náttúrufars, menningariðju, erlendra samskipta og í samhengi við almenna þróun á Íslandi. Auk þess er áhersla lögð á að styrkja og auðga menningartengda ferðaþjónustu á svæðinu.

Markmið ráðstefnunnar eru m.a.:
– að skoða samspil galdra og samfélags fyrr á öldum, með sérstöku tilliti til galdramenningar sem þreifst á Vestfjörðum.
– að kanna hvað í umhverfi, menningu og atvinnuháttumVestfjarða ýtti undir galdratrú í vestfirsku samfélagi.
– að stefna saman fræðimönnum úr ýmsum áttum, innlendum og erlendum, til að ná fram þverfaglegu sjónarhorni á viðfangsefnið.
– að vera framlag til þeirra akademísku rannsókna á göldrum sem fræðimenn í Strandagaldri hafa unnið að á undanförnum árum.
– að styðja við bakið á menningartengdri ferðaþjónustu sem byggð hefur verið upp í Strandasýslu í tengslum við galdra og galdramál.