02/05/2024

Fræði- og listamannadvöl á Hólmavík

Þjóðfræðistofa býður í vetur upp á lista- og fræðimannadvöl í Skelinni, í huggulegu litlu húsi á Hólmavík þar sem rekið er kaffihús á sumrin. Gestir fá að dvelja húsinu í eina
viku á tímabilinu 15. september 2011 – 15. desember 2011. Dvölin er að
jafnaði gjaldfrjáls en öllum gestum er skylt að skila af sér framlagi
undir lok dvalar í formi sýninga, tónleika, fyrirlestra, námskeiða eða
öðru sem um semst við Þjóðfræðistofu. Verkefnið er unnið í samstarfi við
Hólmakaffi og styrkt af Strandabyggð. Ferilskrá og umsókn, þar sem
tilgreint er að hvaða verkefni er unnið og hvernig framlagi skuli
háttað, skal senda á katla@icef fyrir 1. október 2011.


Ef spurningar vakna má einnig hafa samband við Kötlu Kjartansdóttur í síma 865-4463.