19/04/2024

Fiskmarkaður risinn

Á síðustu vikum hefur mikið verið um að vera við hafnarsvæðið á Hólmavík. Unnið hefur verið af kappi við grjótvarnagarð vestan við hafskipabrygguna og eins hefur verið sett uppfylling neðan við Vélsmiðjuna Vík og þar hefur á skömmum tíma risið hús fyrir nýjan fiskmarkað. Vel hefur gengið við þessar framkvæmdir allar og er unnið að þeim alla daga. Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is hefur smellt af myndum öðru hverju, en á milli mynda hefur risið hús.

0

bottom

frettamyndir/2009/580-grjotvarnagardur.jpg

frettamyndir/2009/580-fiskmarkadurnyi2.jpg

frettamyndir/2009/580-fiskmarkadurnyi3.jpg

Fiskmarkaður og grjótvarnagarður verður til – ljósm. Jón Jónsson