27/04/2024

Fatlað fólk á tímamótum – eru mannréttindi virt?

Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) heldur af því tilefni fræðslu- og umræðufundi víðs vegar um landið. Fundur undir yfirskriftinni ,,Fatlað fólk á tímamótum – eru mannréttindi virt?" verður haldinn á Reykhólum í dag kl. 15:00 – 17:30 í Reykhólaskóla.

Íbúar í nærliggjandi sveitarfélögum eru hvattir til að mæta og kynna sér hvað er að gerast í þessum málum. Þetta kemur fram á vef Strandabyggðar.


 Efni fundar: 

1. Ný hugmyndafræði um fötlun og Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Helga Baldvinsd. Bjargardóttir – Fötlunarfræði HÍ. 
2. Þekkir þú réttindi þín? Hrefna K. Óskarsdóttir – ÖBÍ. 
3. Fyrirhuguð Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar. Ingibjörg Loftsdóttir – Sjálfsbjörg. 
4. Viðbrögð ÖBÍ vegna yfirfærslunnar. Guðmundur Magnússon – formaður ÖBÍ. 
5. Umræður og fyrirspurnir. 
Fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk, stjórnendur sem vinna að málefnum fatlaðra og aðrir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir.