Föstudagurinn 12. ágúst 2005
Kl 21:00 Að venju síðustu ára byrjar helgin á kvöldkaffi í boði hótelsins. Dagskráin hefst á því að Lolla og Stína flytja frumsamda, ljúfa músík fyrir gesti og gangandi. Aðgangur er ókeypis.
Laugardagurinn 13. ágúst 2005
Kl 14:00 Djúp”víkingurinn” er ný keppni sem haldin verður fyrir alla krakka sem vilja láta til sín taka. Þrautabraut og margt annað skemmtilegt. Nú sjáum við hvað í ykkur býr J. Mæting á hótelinu kl 14:00.
Kl 15:30 Fyrir göngugarpana verður næst farin “Djúpavíkurhringurinn”. Æðisleg gönguleið með frábæru útsýni yfir fjöllin í sveitinni, Mæting fyrir utan hótelið kl 15:30.
Kl 19:00 Kvöldverðarhlaðborðið á hótelinu verður einstaklega glæsilegt að þessu sinni í tilefni af 20 ára afmæli hótelsins. Stuðboltarnir í hljómsveitinni Hraun spila skemmtilega tónlist fyrir matargesti. Eftir matinn halda þau svo áfram að spila tónlist í hressari kantinum á kvöldvöku. Verðið er 3500 fyrir fullorðna fyrir matinn og kvöldvöku en 2500 ef það er bara matur en hálft gjald fyrir börn 6 – 12 ára.
Kl 00:00 Kveikt verður í brennunni í fjöruborðinu eins og vanalega. Hraun fylgir með og spilar fjöruga “brennutónlist” fyrir fólkið á staðnum. Svo ræðst bara hvar partýið heldur áfram.
Sunnudagurinn 14. ágúst 2005
Kl 11:00 Farið verður í verksmiðjuna með leiðsögn og verður farið í gegnum ferlið sem síldin fór í gegnumverksmiðjuna. Ferðin kostar 500 kr fyrir 12 ára og eldri en ókeypis fyrir yngri börnin.
Kl 14:00 Gómsætt kökuhlaðborð á hótelinu. Ólafía Hrönn fer með gamanmál og bindur endahnútinn á skemmtilega helgi.
Alla helgina eru frí tjaldstæði allsstaðar á svæðinu, með aðgang að salerni.
Einnig verður í boði kajakaleiga. Allar nánari upplýsingar eru í síma: 451- 4037.