29/04/2024

Dansa, hvað er betra en að dansa?

Vikan 14.-18. mars verður sannkölluð dansvika á Ströndum, en þá heldur Jón Pétur Úlfljótsson frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru dansnámskeið fyrir börn og fullorðna í Félagsheimilinu á Hólmavík. Góð þátttaka er í námskeiði fyrir börnin sem skipulagt er í samvinnu við Grunnskólana á svæðinu. Námskeið fyrir fullorðna verður kl. 20:00-21:30 frá mánudegi til fimmtudags. Allir frá 16 ára og eldri geta tekið þátt og hver og einn fær viðfangsefni við sitt hæfi í dansinum. Námskeiðið í heild kostar kr. 4.000.-, en einnig er hægt að mæta á einstök kvöld sem kosta þá kr. 1.000.-