27/04/2024

Dægurlagasamkeppni vegna Hamingjudaga

Menningarmálanefnd Hólmavíkurhrepps hefur ákveðið að efna til dægurlagasamkeppni í tilefni af bæjarhátíðinni Hamingjudagar á Hólmavík. Skila á lögum á geisladiski til nefndarinnar merkt Hamingjudagar á Hólmavík – Lagasamkeppni 2006, Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík. Úrslitakeppni fer svo fram í félagsheimilinu á Hólmavík 27. maí 2006 og munu áhorfendur velja sigurlagið. Lagið má ekki hafa heyrst opinberlega áður og ekki er verra að textinn fjalli að einhverju leyti um Hólmavík eða Hamingjudaga.

Nánari upplýsingar um reglur og fyrirkomulag má finna á heimasíðu Hamingjudaga www.hamingjudagar.is eða með því að hafa samband við Bjarna Ómar Haraldsson framkvæmdastjóra í síma  892-4666 eða hamingjudagar@holmavik.is.