19/04/2024

Breikkun á slitlagi í Bitru dregst enn

Ekki er gert ráð fyrir að vinna við breikkun á einbreiða slitlaginu í Bitrufirði verði boðið út fyrr en síðsumars eða í haust samkvæmt svari Rögnvaldar Gunnarssonar hjá Vegagerðinni við fyrirspurn þar um. Kemur fram að verið sé að vinna að hönnun breikkunarinnar, en undirbúningur hafi gengið hægar en áætlað var. Breikkunin sjálf verði síðan unnin á þessu ári, en slitlagið lagt á því næsta. Strandamenn hafa fram að þessu staðið í þeirri trú að vinna við verkefnið hæfist í vor og höfðu reyndar fyrir rúmu ári fengið þær upplýsingar að vinna við það hæfist haustið 2007.

Sex og hálfs kílómeters vegarkafla sem enn er eftir að lagfæra á milli Drangsness og Hólmavíkur var nýlega skipt í tvö útboðsverk af Vegagerðinni og aðeins 4 kílómetrar boðnir út, en áður hafði vegagerð á þeim vegi verið skilgreind sem sérstakt flýtiverkefni og mótvægisaðgerð af ríkisstjórn Íslands. Í ljósi þessa og sögusagna um að svipuð aðferð yrði viðhöfð til að fresta hluta af breikkun á veginum og slitlaginu í Bitrunni var spurt sérstaklega um hvort breikkunin yrði unnin í einu lagi. Í svari Rögnvaldar segir: "Á þessu stigi hafa ekki verið teknar neinar ákvarðanir um hvernig verkið verður boðið út, en ég geri frekar ráð fyrir að um verði að ræða eitt útboð á verkinu í heild sinni."

Strandamenn eru orðnir mjög óþreyjufullir eftir þessu sjálfsögðu vegabótum og mörgum finnst óþolandi að verkefnum sem fjármagn er til í sé frestað á milli ára, á þessu afskipta svæði sem Strandir eru þegar kemur að vegamálum. Í samgönguáætlun voru eyrnamerktar 78 milljónir árið 2007 í breikkun slitlags og vega á Djúpvegi, 60 milljónir 2008 og 45 milljónir 2009.

Á Djúpvegi er á nokkrum stöðum ennþá einbreitt malbik, en engan snilling þarf til að sjá að einbreiða slitlagið og vegurinn í Bitrufirði hlýtur að vera fremst í forgangsröðinni. Þar er vegurinn mjög illa farinn, sérstaklega á milli Óspakseyrar og Tunguár, þar sem undirlagið hefur ekki þolað þungaflutninga liðinna ára og yfirborðið er í meira lagi öldótt og hjólför eru á köflum djúp. Vegurinn í Bitrunni utan við Óspakseyri allt að Brekku hefur einnig verið til vandræða og á þeim kafla hafa margar bílveltur orðið. Þar er undirlagið í köntunum of sendið og laust í sér. Þegar þungir bílar eru að mætast á einbreiða slitlaginu þurfa báðir að fara út á kantana og þá hættir kantinum til að skríða undan þunga bílanna og hafa bæði vanir og óvanir lent þar í vandræðum og veltum.

Þá skapast oft hætta þegar venjulegir bílar mætast í Bitrunni, því ökumönnum sem eru óvanir slíkum vegum hættir til að þora ekki út fyrir slitlagið þegar þeir mæta öðrum farartækjum. Ef viðhald á köntunum er ekki gott getur verið dálítill hæðarmunur á slitlaginu og kantinum og hrökkva menn þá við. Eins þurfa vegfarendur stundum að prísa sig sæla fyrir að hafa sloppið heilir á húfi eftir að hafa mætt á þessum slóðum ökumönnum sem hafa gleymt því stundarkorn að þeir eru með breið fellihýsi í eftirdragi. Á vegi þar sem flutningabíll og mótorhjól geta ekki mæst með góðu móti kann það ekki góðri lukku að stýra.