Björgunarsveitinni Strandasól í Árneshreppi var boðið til móttöku á Gjögurflugvelli í gær, fimmtudag, þar sem formleg afhending fór fram á styrk sem sveitin fékk úr styrktarsjóði Isavia. Strandasól fékk einn hæsta styrkinn úr sjóðnum, að upphæð 1.400.000.-, og verður hann notaður til byggingar nýs húsnæðis fyrir sveitina. Sveitin þakkaði fyrir sig og sýndi teikningar af nýja húsinu. Styrktarsjóður Isavia var stofnaður árið 2011 með það fyrir augum að efla hópslysaviðbúnað björgunarsveita Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Björgunarsveitirnar gegna lykilhlutverki í flugslysaáætlunum og hópslysaviðbúnaði landsins og allra hagur að björgunarsveitir séu sem best búnar.
Sérstök áhersla er lögð á að styrkja sveitir nærri áætlunarflugvöllum Isavia til kaupa á tækjum og búnaði eða til þess að efla menntun og þjálfun björgunarsveitarmanna. Úthlutun úr styrktarsjóði Isavia fer fram árlega og nam úthlutunin á nýliðnu ári 12 milljónum króna til 18 björgunarsveita. Stefnt er að því að veita átta milljónum króna úr sjóðnum á þessu ári.