Barbara Ósk Guðbjartsdóttir kom, sá og sigraði í karókí-keppni Café Riis sem haldin var í kvöld fyrir troðfullu húsi. Hún fór jafn létt með að bregða sér í gerfi dívunnar Dönu International sem gerði garðinn frægan í Eurovision um árið og Evu appelsínu sem var fegurst, flottust og fínust í Ávaxtakörfunni. Barbara söng með svo miklum tilþrifum að salurinn valdi hana sigurvegara í keppninni. Í öðru sæti var Eyrún Eðvaldsdóttir og í þriðja sæti lenti Agnes Jónsdóttir. Skemmtilegasti keppandinn var valinn Kolbeinn Skagfjörð Jósteinsson sem naut dyggrar aðstoðar Steinars Inga Gunnarssonar í öðru atriðinu sínu.
Karókíkeppni á Café Riis 2010 – ljósm. Jón Jónsson