29/03/2024

Ævisaga klénsmiðsins Þorsteins Þorleifssonar

Klénsmiðurinn á Kjörvogi. Þorsteinn Þorleifsson. Hallgrímur Gíslason.

Nýlega kom út bókin Klénsmiðurinn á Kjörvogi. Þorsteinn Þorleifsson. Þar er sagt frá Þorsteini bónda, járnsmið og uppfinningamanni (1824-1882) sem fæddist og ólst upp í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu, en bjó síðustu 24 árin í Strandasýslu, lengst af á Kjörvogi í Árneshreppi. Hann lærði járnsmíði í Reykjavík og síðar í Kaupmannahöfn og stundaði þá iðn alla sína tíð. Samhliða smíðum starfaði hann við sjómennsku, búskap og tók á móti börnum. Einnig var hann liðtækur við lækningar og svo mætti lengi telja. Höfundur bókarinnar er Hallgrímur Gíslason frá Gröf í Bitrufirði, nú búsettur á Akureyri. Hann hefur unnið að bókinni í mörg ár og víða leitað fanga. Hægt er að kaupa bókina beint hjá höfundi. Auðveldast er að panta hana í síma 849-4509 eða í gegnum netfangið hallgrimurgi@gmail.com.