Á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð er í gangi verkefni sem snýst um að gera æðarvarp aðgengilegt fyrir ferðafólk. Í Orustutanga, sem er tanginn sem félagsheimilið Sævangur stendur á, verpa um það bil 30 æðarkollur og fólki er velkomið að rölta um tangann í rólegheitum og skoða varpið. Búið er að setja upp nokkrar fuglahræður sem vakta varpið og merkja æðarhreiðrin sjálf með litlum flöggum til að minni líkur séu á að fuglaskoðendur fæli fuglinn af hreiðrum eða stigið sé á þau.
Þá er þessa dagana unnið að gerð nokkurra upplýsingaskilta um svæðið, fjöruna og fuglalífið í samvinnu Sauðfjárseturs á Ströndum sem starfrækt er í Sævangi og Ferðaþjónustunnar á Kirkjubóli. Stefnan er að þau skilti verði sett upp í sumar, en þetta verkefni er styrkt af Pokasjóði og Umhverfissjóði.
Í gær var farin eftirlitsferð um varpið og merkt ný hreiður og eru hreiðrin í tanganum nú 26 talsins, en varptíminn dreifist nokkuð hjá æðarfuglinum. Fyrstu ungarnir eru þegar komnir á flot, en sumar kollurnar liggja ennþá á eggjum seinnipartinn í júní.
Öllum er velkomið að skoða sig um í fjörunni á Orustutanga, en auk æðarfuglsins búa þar kríur, tjaldar, teistur, sandlóur og fleiri fuglar. Reikna má með að íslenskar hænur bætist við í fuglaflóruna í sumar þegar hænuungar sem 1. bekkur Grunnskólans á Hólmavík unguðu út í vor og eru núna í búri inni á Sauðfjársetrinu, fá að fara út í sinn eigin hænsnakofa. Sjálfsagt er að nýta sér kaffistofuna í Sauðfjársetrinu í Sævangi í slíkum fjöruferðum og skoða sýningu safnsins, en Sauðfjársetrið er opið frá 10:00-18:00 alla daga í sumar.
Kirkjuból við Steingrímsfjörð í kvöldsólinni – þar er gistihús
Sjö fuglahræður hafa verið reistar í tanganum og hafa allar fengið nöfn. Hér má sjá Rasmus litla, Agnesi, Dóru og Dagrúnu. Tvær þeirra eru raunverulegar manneskjur
Rasmus hefur vakandi auga með ferðum tófunnar, Kirkjuskerið og Selströndin í baksýn
Fuglahræðan Abel fylgist með mannaferðum
Ófeigur gamli hefur hins vegar staðið þarna í nokkur ár og er orðinn buxnalaus
Fuglahræðan Lofthæna og börnin að huga að æðarvarpinu í baksýn
Hreiðrin eru merkt með gulum flöggum
Tvær kollur á eggjum sínum í fjörunni
Unnið að merkingum undir miðnætti í gær – kvöldsólin komin bak við ský. Jón og Arnór á Kirkjubóli og Agnes fylgist með. Dagrún er með myndavélina.
Ljósm. Jón Jónsson og Dagrún Ósk Jónsdóttir