29/04/2024

Aðalfundur Foreldrafélag Grunnskólans


Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík verður haldinn í Hnyðju (Þróunarsetrinu á Hólmavík) þriðjudaginn 25. sept, klukkan 18:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður Hulda Ingibjörg aðstoðarskólastjóri með skemmtilegt erindi þar sem hún leggur þrautir fyrir fullorðna fólkið og kannar hvort foreldrar geti leyst það sem börnin þurfa að finna lausn á. Í lokin gæða fundarmenn sér á gómsætum pizzum frá Café Riis. Foreldrar og forráðamenn hvattir til að fjölmenna.